Posted
2:17 PM
by Kristin
Á morgun förum við Sibbi og Nína til Bandaríkjanna að hitta lækni sem þekkir vel til sjúkdóms Nínu Kristínar. Hann er í Springfield, Illinois. http://www.omsusa.org
Við fljúgum til Minneapolis, fljúgum þaðan til Chicago. Gistum 2 nætur í Chicago og keyrum síðan þaðan suður til Springfield, ca. 3 klukkutímar. Á þriðjudag eigum við viðtal við Dr. Pranzatelli og daginn eftir fer Nína í svæfingu og smá rannsókn. Þessi læknir hefur hitt um 100 sjúklinga með Opsoclonus myoclonus syndrome/dancing eyes sem er meira en nokkur annar held ég því þetta er mjög sjaldgæfur sjúkdómur. Hann hefur verið að fást við ýmsar rannsóknir og telur sig getað metið virkni sjúkdómsins útfrá rannsóknum á mænuvökva. Þetta er búið að vera heilmikill undirbúningur fyrir ferðina. Safna gögnum um Nína og senda út og taka með sér. Það var soldið skrítin tilfinning að fara í gegnum alla pappírana og dagbækur síðan 1995. Rosalega var hún veik....ég var næstum búin að gleyma því! Ef ég kemst á Netið úti læt ég heyra frá okkur. Við erum nokkuð spennt að fara en líka kvíðin. Vonandi gengur allt vel.