Kristín Steinarsdóttir

29.9.04


Afmælisdagur Kristínar ömmu sem ég er skírð eftir en hún dó fyrir tveimur árum. Fjölskyldan hittist á veitingastaðnum 101 í hádeginu. Skemmtilegur staður og frábær veggur Lilju Pálmadóttur sjá http://www.101hotel.is Þarna eru líka ýmsir aðrir fallegir listmunir. Eftir snæðinginn skundaði mamma aftur í Óperuna þar sem hún er á fullu að sauma búninga fyrir næstu uppfærslu sem verður nú í byrjun október, pabbi þaut að orðabókast eða í golf, Rakel á tennisæfingu með stelpunum, Björg að sækja Sverri Hauk ásamt að vera með tvær sex ára frænkur sem voru að byrja í skóla í haust og skilja eiginlega ekkert hvers konar skólabyrjun þetta er, Bryndís þaut í KB-banka og ég, Nína og Áslaug heim á leið. Verst að ég fattaði það hérna áðan að ég gleymdi að boða Magnús Verslunarskólanemann enda hélt ég að hann væri ekki laus á þessum tíma en svo segir hann mér að hann hafi verið laus. Það er svo auðvelt að gleyma þeim þegar þau eru farin að vaxa svona frá manni.


Home