Kristín Steinarsdóttir

27.9.04


Fundir varðandi málefni Nínu hafa verið ofarlega á baugi þennan mánuðinn. Dagurinn í dag var engin undantekning hvað það varðar og slær sennilega metið varðandi fjölda þeirra fagmanna sem við höfum átt samskipti við á einum degi! Við Sibbi byrjuðum á heimsókn í Rjóðrið í Kópavogi en það er hvíldar- og hjúkrunarheimili fyrir langveik og fötluð börn. Vel var tekið á móti okkur og þarna virðist vera góð starfsemi sem við ætlum hugsanlega að nýta okkur. Þarna áttum við fund með tveimur konum. Næst lá leiðin niður á Dalbraut á Bugl en þaðan erum við að fá aðstoð m.a. vegna langvarandi svefnvandamála Nínu. Þar var farið yfir stöðuna ásamt lækni, sálfr., hjúkrunarfr., félagsfr., sjúkraliða. Því næst lá leiðin inní Hjálpartækjamiðstöð ásamt Nínu en þar var hún að prófa glænýjan rafmagnshjólastól/bíl sem hún getur notað utandyra í lengri gönguferðir. Þetta er mikið tæki og Nína stóð sig vel. Þarna voru mættir einnig sjúkraþjálfari Nínu og iðjuþjálfi ásamt starfsmanni frá Stoð og Hjálpartækjamiðstöð. Seinnipartinn kom svo Gunnþórunn aðalhjálparhella og var með Nínu meðan ég skrapp í jóga. Stuttu síðar komu svo tveir starfsmenn Bugl heim vegna svefnprógrammsins sem búið er að vera í gangi s.l. viku. Mér telst til að þetta hafi verið 14 manns sem við höfum átt nokkuð bein samskipti við í dag vegna Nínu. Listinn er reyndar miklu lengri svona almennt séð og kannski ekkert skrítið að stundum finnst mér að maður missi yfirsýnina.


Home