Posted
3:22 PM
by Kristin
Komum heim á föstudagsmorgun eftir langt ferðalag. Nína var reyndar mjög slöpp á fimmtudaginn er við áttum að fara að leggja af stað, mjög slæma verki í bakinu og við næstum búin að fresta fluginu. Fengum verkjalyf fyrir hana og ákváðum síðan að taka fyrsta flugið þ.e. til Chicago og sjá hvort það gengi og halda þá áfram annars henda okkur á hótel. Það gekk vel þannig að áfram var haldið til Minneapolis og síðan heim og verkjalyf gefin á tveggja tíma fresta. Nú en síðan við komum heim er hún bara búin að vera mjög slöpp. Borðar ekkert eða drekkur, liggur bara fyrir og er öll mjög tuskuleg. Leist ekki alveg á hana í gær og talaði við Ýr lækninn hennar hér heima. Við hittum hana svo áðan niður á bráðamóttöku. Blóðprufur, röntgenmyndatökur ofl. Hefur safnað á sig miklum hægðum og drekkur lítið. Ákveðið að leggja hana inn á Barnaspítalann allavega til morguns og sjá hvort hún hressist ekki.
En við áttum stutt samtal við Dr. Pranzatelli þarna rétt áður en við fórum í flugið á fimmtudaginn. Niðurstöður prufanna á mænuvökvanum sýna að sjúkdómurinn er enn virkur sem etv. skýrir þessar sveiflur í henni, stundum hress og stöðug og stundum mjög lin og slöpp. Hann vill hana af sterunum en ef við tækjum þá alveg af henni myndi henni örugglega versna þannig að hann leggur til að setja inn annað lyf. Svo er margt annað sem hann vill að verði skoðað og tekið á en við fáum það allt í ítarlegri skýrslu sem hann sendir okkur og Ýr fljótlega. Sibbi er niður á spítala núna en ég skrapp aðeins heim og er svo að fara að leysa hann af. Nína var reyndar búin að fá nóg af læknastússi þarna úti og er ekki hress með þetta. En eitthvað þarf að gera til að ná henni upp.