Kristín Steinarsdóttir

30.9.04


Nína fór í morgun í iðjuþjálfun sem er staðsett hjá Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra á Háaleitisbraut sjá http://www.slf.is Á meðan hún var þar kíktí ég upp á aðra hæð en þangað er Sjónarhóll http://www.serstokborn.is kominn með starfsemi ásamt Þroskahjálp, Umhyggju og fleiri félögum. Þar er einnig Tölvumiðstöð fatlaðra http://www.tmf.is . Sjónarhóll á að sinna því hlutverki að vera ráðgefandi fyrir foreldra í frumskógi kerfisins. Við foreldrar fatlaðra og langveikra barna höfum haft miklar væntingar til þessarar starfsemi og vonandi á hún eftir að sanna sig.

Í kvöld fór ég á fund hjá Félagi kvenna í fræðslustörfum en það eru alþjóðleg samtök og er ég í Eta deild. http://frontpage.simnet.is/birki/index.htm
Á fundinn kom Anna Flosadóttir kennari í Hlíðaskóla og sagði okkur frá listgreinakennslu í sínum skóla sem er nú móðurskóli í list- og verkgreinum. Þau hafa sett leiklist inn sem á stundaskrá hjá öllum nemendum í 2.-8. bekk og telja þann þátt ekki síður mikilvægan en heimilisfræði eða smíðar.


Home