Kristín Steinarsdóttir

8.9.04


Þórarinn pabbi Möggu vinkonu dó í dag. Þar fór góður maður sem var okkar aðalsmiður við húsbygginguna í Aflagrandanum og svo í Brekkuskála fyrir tveimur árum. Honum féll aldrei verk úr hendi og það er vissulega eiginleiki sem prýðir Möggu vinkonu. Það var alltaf ánægjulegt að vera nálægt Þórarni.

Nína er öll að hressast en þarf að vera heima fram að helgi. Förum á spítalann á föstudag í smá tjékk en svo útskrifast hún vonandi.

Ýr læknirinn hennar Nínu var í sjónvarpinu hjá Sirrý í kvöld afþví hún á 6 börn! En það sem ekki kom fram í þættinum er að hún er frábær læknir sem hefur sinnt okkur mjög vel. Alltaf með á nótunum, jákvæð og skilningsrík og með flotta yfirsýn. Sjúklingar hennar eru heppnir að eiga hana að, eins gott að hún er útivinnandi!





Home