Kristín Steinarsdóttir

8.9.04


Við Nína sváfum vel á spítalanum í nótt. Hún var slöpp fram yfir hádegi. Tilbreyting dagsins var er Svíadrottning og Dorrit mættu á svæðið. Þær heilsuðu börnunum og Nínu og ég tók myndir auk ljósmyndaranna 20 sem voru á staðnum. Nína hresstist soldið undir kvöldmat og fékk að fara heim og gista í kvöld og mæta svo niðurá spítala aftur í fyrramálið. Ásta bauð okkur í mat sem var vel þegið af öllum fjölskyldumeðlimum. Nínu leið vel eftir þá heimsókn og að fá síðan að leika aðeins heima. Sofnaði seint með pabba.


Home