Kristín Steinarsdóttir

28.10.04


Í næstu viku verða liðnir tveir mánuðir frá því við komum heim frá Bandaríkjunum með Nínu. Niðurstöður læknisins úti bárust fyrir mánuði og nú eru íslensku læknarnir búnir að skoða niðurstöðurnar. Ýr fékk Björn sem er innan ónæmisfræðinnar til að leggja mat sitt á niðurstöðurnar og er hann sammála Dr. Pranzatelli að greinilega er um einhverja bólguvirkni hjá Nínu sem verður að meðhöndla til þess að ekki hljótist meiri skaði af. Þetta skýrir m.a. afhverju gengur svona illa að taka hana af sterunum. Hún þarf eitthvað ónæmisbælandi lyf þannig að ónæmiskerfið sé ekki alltaf að senda vitlaust skilaboð inn í miðtaugakerfið. Við höfum s.l. ár ekki verið sátt við framgang mála hjá Nínu þar sem líðan hennar og geta er svo breytileg. Sjúkdómurinn á þarna held ég stóran hlut að máli og ef hún fær rétta meðhöndlun gæti ástand hennar jafnvel orðið betra eða allavega í betra jafnvægi. Læknarnir hér þurfa enn smá tíma áður en lagt verður af stað með lyfjabreytingarnar sem snúast í raun um það hvaða aukaverkarnir þolir hún best því öll þessi ónæmisbælandi lyf hafa aukaverkanir. Enn eigum við eftir að sjá hverju þetta skilar okkur en hér er um nokkurs konar u-beygju að ræða eins og Sibbi sagði. Við vitum núna betur hvað þarf að gera og afhverju og það hlýtur að vera viðurkenning á því að þetta var rétt ákvörðun hjá okkur að fara og hitta Dr. Pranzatelli þrátt fyrir kostnaðarsama ferð og ákveðnar efasemdir í upphafi hvort væri þess virði eður ei.


Comments:
If you are alone, call this number 800-211-9293. Connect with Real Singles from your local area instantly for only $0.99/min with a $4.99 connection fee. A true Match is only one phone call away 800-211-9293. Meet people with common interests and desires now. Check it out. 800-211-9293
 
Sendu inn athugasemd

Home